Höfnum vopnakaupum og ofbeldi

Áskorun á Forseta Íslands

Hverskyns vopn leiða til aukins ofbeldis. Verum samtaka að kynna fyrir þjóðinni áskorun á Forseta Íslands að hafna og vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu fjárlögum sem innifela vopnakaup fyrir erlent ríki.


Leggðu þitt af mörkum til að kynna átakið. Hægt er að greiða með korti hér við hliðina eða leggja inná reikning Friðar 2000:

Banki 0133-15-008494
Kennitala: 540795-2589
Friður 2000 Ísland


Áskorun á Forseta Íslands á island.is: nuna.is/vopnakaup

 

Áskorun á Forseta Íslands á island.is: nuna.is/vopnakaup

Bréf sent Forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, 13 september 2024:

Frú Forseti,
Um leið og við þökkum þér að vekja athygli á nauðsyn þess að komast fyrir ræturnar á þróun ofbeldis í samfélaginu viljum vekja athygli þína á yfirvofandi stríðsyfirlýsingu Alþingis sem því miður virðist hafa verið skautað yfir í ávarpi Forseta Íslands við þingsetningu 10 september.

Þróun ofbeldis í samfélaginu.

Friður 2000 vakti athygli á þessari hættulegu þróun fyrir aldafjórðungi síðan. Í samstarfi við UNESCO birtum við upplýsingar úr skýrslum sem afhjúpuðu hvernig ofbeldi væri að aukast meðal ungs fólks í kjölfar aukins ofbeldis í kvikmyndum og tölvuleikjum.

Börn skynja stundum ekki mun á leik og alvöru og þurfa fræðslu. Friður2000 efndi til námskeiða gegn ofbeldi og framleiddi stuttmyndir fyrir sjónvarp til birtingar á undan ofbeldisfullu efni til fræðslu fyrir foreldra og börn gegn ofbeldi. Því miður fyrir aldarfjórðungi síðan fengum við ekki nægan stuðning til að halda verkefninu áfram. Ég minnist fundar hjá Kennarasambandi Íslands þar sem sjónarmið Friðar2000 um að taka upp skipulagða fræðslu gegn ofbeldi urðu undir, gegn áhrifamikilli tjáningu fulltrúa stærsta dreifingaraðila ofbeldisefnis á Íslandi, sem þvert á skýrslur UNESCO sagði enga hættu á ferðum.

Í kjölfar þess hræðilega ofbeldis atburðar sem gerðist á Menningarnótt í Reykjavík, heyrist í útvarpsþáttum umræða á þá leið að ofbeldið hafi komið með nýbúum eða flóttamönnum til landsins. Slík framsetning er á skjön við raunveruleikann og getur orðið til að auka ofbeldið enn frekar. Fræðslu gegn ofbeldi þarf að stýra í meira yfirvegaðri umræðu og aðgerðir.

Framleiðsla á stuttmyndum til birtingar á undan ofbeldisfullum kvikmyndum og leikjum, fræðsla í skólum, námskeið fyrir foreldra og skipulögð umræða í fjölmiðlum og samfélaginu sem byggir á staðreyndum eru verðug verkefni sem Forseti Íslands gæti lagt stuðning við.

Landráð

Sama dag og Frú Forseti ávarpaði þingheim við setningu Alþingis 10 september 2024, var lagt fram fjárlagafrumvarp með margföldun á vopna kaupum til stuðnings erlendu ríki til styrjaldar utan NATO. Verði slík milljarða króna vopnakaup að lögum frá Alþingi jafngildir það formlegri stríðsyfirlýsingu Íslands gegn Rússlandi. Á síðasta sólarhring hefur forseti Rússlands ítrekað viðvörun sína að auknar vopna sendingar frá NATO ríkjum til Úkraínu sem notað sé til árása á Rússland leiði til þess að Rússland sé komið í stríð við NATO.

Í aðdraganda forsetakosningana mótmæltum við því bæði að stjórnvöld væru að kaupa vopn fyrir 300 milljónir króna. Nokkrum dögum eftir kosningar kom Forsætisráðherra heim með samning sem hann hafði gert um að styðja stríðsrekstur Úkraínu um 25,5 milljarða á næstu fjórum árum. Samninginn gerði hann við einstakling sem situr eftir að kjörtímabil hans er útrunnið og í raun umboðslaus sem forseti þar í landi. Við sjáum síðan í drögum að fjárlögum sem lögð voru fyrir Alþingi 10 september s.l. amk tíföldun á framlögum til vopnakaupa þessa erlenda ríkis. Nær 7 milljarðar í málaflokkinn þar af vopn fyrir þrjá milljarða króna - Tíföldun!

Allstaðar sem við mættum almenningi á ferðum okkar sem forsetaframbjóðendur var það ljóst að nánast enginn styður slík vopnakaup Íslenskra ráðamanna.

Vopnakaup þvert á þjóðarvilja, ekki til varnar landsins, fjármögnuð af skattfé Íslendinga, til styrjaldar í fjarlægu landi utan NATO, eru um leið stríðsyfirlýsing og ögrun gegn stórveldi búið kjarnorkuvopnum sem hefur hótað að svara fyrir sig. Þannig er Íslenskri þjóð stefnt í verulega hættu af glannalegum stjórnarathöfnum. Vopnakaupin eru á skjön við þjóðarör­ygg­is­stefnu lands­ins, NATO samn­ing­inn og sátt­mála Sam­einuðu þjóðanna. Að stofna öryggi ríkisins í hættu með stuðningi við erlent ríki eru landráð samkvæmt almennum hegningarlögum.

Í forsetaframboði þínu, um leið og þú talaðir gegn vopnakaupum, sagðist þú vilja vera boðberi friðar og taka samtalið við þjóðina. Þjóðin tók undir þennan boðskap og veitti þér traust til að gerast sinn öryggisventill á Bessastöðum. Nú reynir á þetta. Þér ber skylda að bregðast ekki trausti þjóðarinnar og synja fjárlögum frá Alþingi sem innihalda vopnakaup til stuðnings erlendu ríki.

Stjórnvöld hafa haft þann leiða sið að ganga ekki frá fjárlögum fyrr en á síðustu dögum fyrir áramót. Til að komast hjá því að setja fjárlög í uppnám á síðustu stundu, leggjum við til að þú gerir þingheimi, stjórnvöldum og þjóðinni ljóst að þú munir nýta heimild þína sem forseti til að vísa fjárlögum til þjóðaratkvæðagreiðslu innihaldi þau stuðning við vopnakaup erlenda ríkja.

Forseti Íslands tali fyrir friðaraðgerðum á alþjóðavettvangi

Við skorum á þig sem boðbera friðar að nota tækifærið í opinberri heimsókn til Friðriks X Danakonungs í næsta mánuði að minna dönsku þjóðina á að vopnakaup þeirra til að herja stríð innan Rússlands eru olía á ófriðarbálið. Nauðsynlegt er að beita öðrum aðgerðum til varanlegs friðar. Vel væri við hæfi að smá kliður fari um höllina þegar boðberi friðar vekur athygli á þessari staðreynd sem mannkynið hefur upplifað af stríðsrekstri í gegnum aldirnar.

Með kveðju
Alþjóðastofnunin Friður 2000
Ástþór Magnússon

BrefForsetiIslands-13sep24

Áskorun á Forseta Íslands á island.is: nuna.is/vopnakaup

Hverskyns vopn leiða til aukins ofbeldis. Verum samtaka að kynna fyrir þjóðinni áskorun á Forseta Íslands að hafna og vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu fjárlögum sem innifela vopnakaup fyrir erlent ríki.


Leggðu þitt af mörkum til að kynna átakið. Hægt er að greiða með korti hér við hliðina eða leggja inná reikning Friðar 2000:

Banki 0133-15-008494
Kennitala: 540795-2589
Friður 2000 Ísland


Áskorun á Forseta Íslands á island.is: nuna.is/vopnakaup

 

Madleen Gaza Crew awarded the 2025 Leif Eiriksson Peace Award

The Leif Eiriksson Peace Award was received on behalf of the Madleen crew by Reva Viard and Omar Faiad at the Mirpuri Foundation International Sailing Trophy event in Cascais Portugal […]
Lestu meira

Bréf til Guðs leiddi til loftbrúar jólasveinsins

Á aðfangadagskvöld gekk faðir í örvæntingu eftir að bjarga lífi ungrar dóttur sinnar inn á skrifstofu CNN í Bagdad með bréf í hendinni stílað á…
Lestu meira

Björgunarflugvél til Írlands

Ég var ungur, aðeins sex eða sjö, ég var alvarlega veikur… ég man eftir að hafa verið á sjúkrahúsi með Vitaly vini mínum og við hlupum á eftir Adi og báðum hana að taka …
Lestu meira

Atvinnulífið

Smelltu á mynd til að styrkja eða gefa vörur.